Tónskólinn býður upp á endur- og símenntun á sviði kirkjutónlistar einkum í orgelleik, söng og ryþmískum hljómborðsleik. Auk þess eru reglulega haldin styttri námskeið sem auglýst eru hér undir þessum flipa. Skráning á endurmenntunarnámskeið fer fram í tölvupósti á tonskoli@tonskoli.is.
Orgelleikur
Tónskólinn býður upp á einkakennslu í orgelleik. Hægt er að sækja einkakennslu í orgelleik víða um land. Námið er einkum hugsað fyrir organista í starfi sem vilja bæta við sig en einnig þá sem langar að kynnast hljóðfærinu án skuldbindinga varðandi námskröfur.
Söngur
Tónskólinn býður upp á einkakennslu í söng. Hægt er að sækja einkakennslu í söng víða um land. Námið er einkum hugsað fyrir organista, kórstjóra, söngvara í kirkjukórum og aðra þá sem vilja bæta við sig án skuldbindinga varðandi námskröfur.
Ryþmískur hljómborðsleikur
Tónskólinn býður upp á einkakennslu í ryþmískum hljómborðsleik. Námið er einkum hugsað fyrir organista, kórstjóra og aðra þá sem vilja bæta við sig án skuldbindinga varðandi námskröfur.
Hver einkatími er 40 mínútur.
3 tímar: kr. 24.000,-
5 tímar: kr. 37.500,-
14 tímar (heil önn): kr. 112.000,-
Tónskóli þjóðkirkjunnar býður upp á raddþjálfun fyrir kirkjukóra og minni hópa sem reyndir söngkennarar víða um land sjá um. Hver tími er 60 mínútur.
Raddþjálfun fyrir heilan kór
Eitt skipti: kr. 15.000,-
(Fullt verð: kr. 25.000,-)
Raddþjálfun fyrir minni hóp (2-3 söngvarar saman). Verð eru gefin upp fyrir hvern söngvara.
3 tímar: kr. 15.000,-
5 tímar: kr. 29.500,-
Ljómandi námskeið eru vettvangur fyrir innblástur, góðar hugmyndir og jafnvel hugljómanir fyrir fólk í starfi í kirkjum og aðra áhugasama um viðfangsefni námskeiðanna. Virk þátttaka og hugmyndaflæði einkenna Ljómandi námskeiðin og markmiðið að þátttakendur fari ljómandi af þeim! Ljómandi námskeið eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Staðsetning námskeiðanna verður auglýst þegar nær dregur.
Á vorönn verða þrjú Ljómandi námskeið í boði:
Hvað?
Hvað eru Krílasálmar? Hvernig get ég byrjað með Krílasálma í starfinu í kirkjunni minni? Innblástur og nýjar hugmyndir.
Fyrir hvern?
Öll áhugasöm um Krílasálma.
Staðsetning
Langholtskirkja
Hvenær og hverjir?
Föstudagur 2. febrúar 2024 kl. 13:30-15:30
Leiðbeinendur: Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Guðný Einarsdóttir og Kirstín Erna Blöndal.
Hvað?
Hvernig hitum við upp barnakór? Hvernig brjótum við æfingarnar upp? Þátttakendur hvattir til að koma með eigin hugmyndir og deila með öðrum.
Fyrir hvern?
Stjórnendur barnakóra og aðra áhugasama um barnakórastarf.
Staðsetning
Langholtskirkja
Hvenær og hverjir?
Föstudagur 2. febrúar kl. 16-18
Leiðbeinandi: Sunna Karen Einarsdóttir
10 tíma námskeið í barnakórstjórn, kennari er Sunna Karen Einarsdóttir, stjórnandi barna- og unglingakóra við Langholtskirkju í Reykjavík þar sem námskeiðið fer fram. Námskeiðið er valgrein í námi Tónskóla Þjóðkirkjunnar en verður vorið 2024 opið öllum sem áhuga hafa.
Verð
10 tímar, 24.000 kr.
Staður
Langholtskirkja í Reykjavík
Skipulag
Þriðjudagur 9. janúar
14:00-15:00 - fyrirlestur og umræður
15:00-16:00 - fylgst með kóræfingu
Miðvikudagur 17. janúar
15:00-16:00- fyrirlestur og umræður
16:15-17:30 - fylgst með kóræfingu
Fimmtudagur 25. janúar
14:00-15:00 - fyrirlestur og umræður
15:00-16:30- fylgst með kóræfingu
Vikan 29. janúar til 2. febrúar:
Þriðjudagur 30. janúar kl. 15-16
Miðvikudagur 31. janúar kl. 16:50-17:50
Fimmtudagur 1. febrúar kl. 17-18
Val um einn af ofangreindum þremur tímum til að koma og leiða hluta æfingar. Þátttakendur einnig hvattir til að mæta og fylgjast með á þeim æfingum sem þeir eru ekki sjálfir að leiða.
Föstudagur 2. febrúar
16-18 Ljómandi leikir og upphitun í barnakór
Námskeiðið skiptist í tvo hluta, fræðilegan og verklegan. Fræðilegi hlutinn fjallar um sögu orgelsins síðustu 600 árin. Hlustað er á hljóðdæmi og lýsingar á sögulegum orgelum skoðaðar. Í verklega hlutanum er farið í uppbyggingu orgelsins, stilling tunguradda kennd og bilanagreining æfð. Námskeiðið er hluti af námi Tónskóla Þjóðkirkjunnar en verður vorið 2024 opið öllum þeim sem áhuga hafa.
Verð
Orgelfræði, fræðilegur hluti, 7 tímar: 17.500
Orgelfræði, verklegur hluti, 14 tímar: 35.000
Báðir hlutarnir saman: 45.000
Skipulag
Orgelfræði, fræðilegur hluti, 7 tímar
Mánudagur 12. febrúar kl. 12:30-16:00
Þriðjudagur 13. febrúar kl. 9-12:30
Kennari: Eyþór Ingi Jónsson
Staður: Reykjavík og nágrenni (nánari staðsetning auglýst þegar nær dregur)
Orgelfræði, verklegur hluti, 14 tímar
Sunnudagur 21. janúar kl. 14-18
Mánudagur 22. janúar kl. 16-19
Sunnudagur 4. febrúar kl. 14-18
Mánudagur 5. febrúar kl. 16-19
Kennari: Björgvin Tómasson
Staður: Orgelsmiðja Björgvins á Stokkseyri
Boðið verður upp á masterclass námskeið í orgelspuna hjá spunameistaranum Mattias Wager, dómorganista við Storkyrkan í Stokkhólmi. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Félag íslenskra organleikara.
Verð
Fullt verð 25.000 (niðurgreitt fyrir meðlimi í Félagi íslenskra organleikara)
15.000 fyrir nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Staður
Grafarvogskirkja
Skipulag
Fimmtudagur 18. janúar 2024 kl. 13-18
Föstudagur 19. janúar 2024 kl. 9-15